Leita í fréttum mbl.is

Óskalög öreiganna, 5. þáttur

Það var þreyttur en ánægður forsætisráðherra, sem var að yfirgefa ráðherrabústaðinn á svipuðum tíma og ég yfirgaf minn vinnustað eftir erfiða kvöldvakt.  Hann gaf sér þó tíma til að senda dyggum lesendum/hlustendum óskalaga öreiganna kaldar kveðjurDevil

Öreigar allra stétta, sagði hann, þurfa ekkert að bíða eftir neinum "pökkum" frá mér, enda langt til jóla og ekkert víst að þau verði haldin í árFootinMouth

Ég er búin að múlbinda forystu verkalýðshreyfingarinnar og þjóðnýta lífeyrissjóðina ykkar, svo það þýðir ekkert fyrir ykkur að ibba gogg. „Ég er mjög ánægður með viðbrögð aðila vinnumarkaðarins um það sem við höfum rætt við þá".  Þeir gera bara það sem ég bið þá umCool.   Nú eru erfiðir tímar en ég er komin með allt heila klabbið undir control.  

Geir fannst það vel við hæfi að senda lagið:  Under my thumb með The Rolling StonesCool

Hverjir ætli kaupi eignir íslensku bankanna úti í hinum stóra heimi?  Er ekki "niðursveifla" (má ekki segja kreppa) allstaðar?W00t


mbl.is Ekki þörf á aðgerðapakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

það verður fróðlegt að fylgjast með fréttum á morgun

Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2008 kl. 02:06

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já svo sannarlega Hólmdís, eins gott að ég er í fríi

Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 02:24

3 Smámynd: Skaz

Ætli verði tilkynnt um framlengingu kjarasamninga?

Skaz, 6.10.2008 kl. 02:27

4 Smámynd: Skaz

Og já varðandi erlenda kaupendur þá er ekki nálægt því eins slæmt ástand í Evrópu og á Norðurlöndunum og hér. Lægri vextir og lægri verðbólga. Og í mörgum tilvikum gætu erlendir lífeyrissjóðir og fjárfestar sem fjármögnuðu sig "eðlilega" lumað á fé.

Skaz, 6.10.2008 kl. 02:29

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Já tad verdur spennandi ad fylgjast med .....Hverjir kaupa hverja og hverjir fá hvad fyrir greidann........

Fylgjumst med

Knús á tig kæra Sigrún og njóttu frísins í dag.

Gudrún Hauksdótttir, 6.10.2008 kl. 06:41

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góðan daginn Sigrún mín, vonandi berast einhverjar betri fréttir í dag. 

Ía Jóhannsdóttir, 6.10.2008 kl. 07:34

7 identicon

Sæl Sigrún.

Ég held að kallinn sé ekki með öllum mjalla eða hann er eitthvað stórkostlegt að malla. þessi stóíska ró gengur ekki upp. Allt er í volli. Kallinn segir að ekkert sé að .Hvernig á maður að skilja þetta?

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 08:19

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góð eins og vanalega.  Merkilegt hvað almenningur verður merkilegur á svona stundum, miðað við að það er venjulega gengið fram hjá honum en það er fínt að nýta hann þegar á móti blæs.

Ég segi þér svo í trúnaði að ég hef ekki trú á verkalýðshreyfingunni fyrir fimm aura.  Þeir eru í núll tengslum við hina vinnandi stétt.

Fandinn sjálfur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2008 kl. 10:06

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Held því miður að verkalýðsforystan sé löngu dauð og farið að slá í líkið!! Nú á að seilast í lífeyrissjóðina og við að borga skellinn, hvað annað.

Rut Sumarliðadóttir, 6.10.2008 kl. 10:55

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Get ÉG fengið óskalag hjá þér?

Blue Eyes með Elton John?

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 12:37

11 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Góð, að vanda Sigrún. Maður er orðlaus, svo einfalt er það. Þvílíkur hroki í forsætisráðherra og ríkisstjórninni í heild.

Hef takmarkaða trú á verkalýðshreyfingunni sem er fyrir löngu búin að gleyma hlutverki sínu gagnvart launþegum og gildum.

Ég spái því að allir kjarasamningar verði framlengdir, fjárfestum verði bjargað og öll áhersla á þá og fyrirtækin. Einstaklingarnir blæða, líkt og áður og einugis þeir sterkustu komast af úr þeirri kreppu.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.10.2008 kl. 13:30

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það styttist í ræðu Geirs, hvar endar þetta, maður spyr sig.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband