Leita í fréttum mbl.is

Brisbane, ekki spurning!

Ef ég þyrfti að velja um afmælisboð í dag á milli Bessastaða eða Brisbane í Ástralíu, væri ég nú ekki í vandræðum með valið.  Brisbane, ekki spurningWizard!

Ég hef grun um að blásið verði til teboðs á Bessastöðum í dag.  Þ.e.a.s. ef turtildúfurnar eru heima.  Bessastaðabóndinn á afmæli í dag, ég veit það af því að hann deilir þessum degi með  bróður mínum, Alberti FinniWink. 

Abbi bróðir er örugglega að fá sér svalandi íste við sundlaugarbakkann heima hjá sér í tilefni dagsins, eða þá að hann hefur tekið seglbrettið sitt niður að einhverju siglingavatni þarna niðurfrá í Brisbane, Ástralíu.

Ég hefði nú ekkert á móti því að fá mér íste, við sundlaugarbakkann, eins og Berglind frænka gerði á sínum tíma. (mynd stolið úr myndasafni Berglindar frá Ástralíuheimsókn!). 

 

.Abba sundlaug

Það eru komin 28 ár síðan Abbi bróðir flutti til Ástralíu.  Hann féll fyrir Ástralskri yngismær, af Skoskum uppruna, sem dvalið hafði um nokkurra mánaða skeið við fiskvinnslu heima á Suðureyri.  Þetta var á þeim árum sem litlu sjáfarútvegsþorpin víðsvegar um landið urðu viðkomustaður ungs fólks frá Ástralíu, sem notaði árið eftir útskrift úr menntaskóla til að ferðast um Evrópu.  Á Íslandi gátu þau unnið sér inn pening til að halda ferðalaginu áfram, áður en snúið yrði heim á leið og alvara lífsins tæki viðSmile. 

Sumir þessara ungu Ástrala ílengdust hér á Fróni og festu sitt ráð, eins og sagt er, aðrir tóku bara ástina sína með sér heim að ævintýraferð lokinni og í fljótu bragði man ég eftir 4 ungmennum frá Súgandafirði sem fylgdu ástinni sinni til Ástralíu, þar á meðal voru Albert bróðir minn og Erna fermingarsystirInLove.

Mér er ekki boðið í te til Bessastaða í dag frekar en fyrri daginn en er sko alveg “sléttsama”.  Ég veit hinsvegar að ég væri alltaf velkomin til Brisbane, hvort sem afmælisveisla stæði fyrir dyrum eður ei og þangað væri gaman að koma.

Abbi í Ástralíu

Elsku bróðir til hamingju með afmælið þitt í dag og bestu afmæliskveðjur til Julie þann 19. maíWizard.  Hafið það ávalt sem best,

kær kveðja,

Sigrún systir.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með bróa

Ég væri líka alveg til í íste eða bara kalt hvítvín við sundlaugarbakkann.....

Hrönn Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 12:55

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með hann ég held að það sé yndislegt að vera í Ástralíu það er bara svo langt í burtu.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 13:04

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk stelpur mínar.

Hrönn, ég er að fara til vinkonu minnar í Garðabænum.  Við ætlum að skála í Áströlsku hvítvíni, og beina glösum okkar suður á bóginn.  Við getum lítið að því gert að bústaður "tedrykkjufólksins" verður í beinni sjónlínu.......  Það er nú veðrið til að svala þorstanum í dag.

Sigrún Jónsdóttir, 14.5.2008 kl. 13:10

4 identicon

Til hamingju, Sigrún mín, með hann bróður þinn (og líka Ólaf Ragnar!)

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 13:24

5 identicon

Til hamingju með brósa þinn og mágkonu

Jemundur minn hvað maður myndi vilja vera við sundlaugarbakkann í Brisbane  með kalt hvítvín og njóta dagsins.

Hér er yndislegt veður í dag svo við verðum að gleðjast

Kveðja af svölunum á Skaganum

Anna Bja (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 13:27

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innilega til hamingju með bróður þinn í Ástrallalíu Sigrún mín.  Iss ekkert varið í teið á Bessastöðum svo þú ert ekki að missa af miklu

Ía Jóhannsdóttir, 14.5.2008 kl. 15:41

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

  Drífðu þig til Ástralíu

Hólmdís Hjartardóttir, 14.5.2008 kl. 17:36

8 identicon

jæja....tilraun 3 að kommenta hjá þér:) takk fyrir kommentið....ekkert krípí að Sigrún frænka sé að skoða bloggið sko!!!:) Væri alveg til í að fara til Ástralíu aftur og er það alveg inn á ferðaplaninu næstu árin...Til hamingju með afmælið Abbi!!:) bestu kveðjur frá ameríkunni

Berglind í Bandó (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 21:32

9 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Til hamingju með brósa.....við fermingarsystkinin hérna eigum "30 ára afmæli í dag" og við erum handviss um að landsmenn séu að flagga fyrir okkur  bestu kveðjur til þín héðan úr rigningunni

Halldóra Hannesdóttir, 14.5.2008 kl. 22:29

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Æ, stelpur þið eruð allar yndislegar.  Ég átti góðan 14. maí dag og vona að svo hafi líka verið hjá afmælisbörnum dagsins.

Elsku Berlind, þú dregur bara frænku gömlu með, í næstu Ástralíuferð og hún lofar að vera bara skemmtileg.  Love you baby.

Sigrún Jónsdóttir, 14.5.2008 kl. 22:36

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega ti hamingju með bróður þinn í langtíburtistan

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 22:53

12 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Brisbane í Ástralíu  hljómar vel, eiginlega of vel. Innilegar hamingjuóskir með bróðurinn

Vonandi hefur þú notið hvítvínsisn og dvalarinnar í Garðabænum, þar ólst ég upp og ekki víða betra að vera. 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 15.5.2008 kl. 00:27

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með bróa þinn Sigrún mín, ætli ástralíurnar og nýsjálendingarnir hafi ekki verið fyrstu farandverkakonurnar hér í langan tíma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2008 kl. 00:41

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk kæru bloggvinkonur.

Guðrún ég sólbrann í Garðabænum en naut hverrar mínútu.

Sennilega er þetta rétt tilgetið hjá þér með farandverkakonurnar af erlendu kyni.  Ég man eftir Englendingum og Færeyingum fyrir þann tíma en það voru yfirleitt karlmenn.....nei bíddu nú við það voru líka færeyskar konur og hún Lillý mín er ennþá búsett heima í firðinum.  

Sigrún Jónsdóttir, 15.5.2008 kl. 10:45

15 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Haha Sigrún, já hún er sprelllifandi og á nokkra afkomendur hérna

Halldóra Hannesdóttir, 15.5.2008 kl. 13:17

16 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með bróðir þinn hafðu ljúfan sunnudag Elskuleg

Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 00:27

17 identicon

Drífðu þig til Ástralíu Sigrun...then you can come and see me.. AND Berlind, þú dregur bara frænku gömlu með and then come and see your frænkur in vestur Ástralíu......

Although we are getting winter now, is only about 20 in the day and rain......however, this weekend will be nice and sunny....nice to sip champagne or white wine....out in the garden....

Love you my dearest friend....xxxxx

Helga Kársdottir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 04:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband