Leita í fréttum mbl.is

Skelfilegt ástand að mati tuðara!

Ég var að hugsa um að láta síðustu færslu mína standa í einhvern tíma og vonaði að bjartsýniskastið, sem fram kemur í henni myndi myndi duga mér í einhvern tíma.  Það er nefnilega talað um okkur sem gagnrýnum aðgerðir/aðgerðaleysi stjórnvalda, sem tuðara dauðans og ég "grínstrumpurinn" er sko ekki ein af þeim!Woundering

Í hvert sinn, sem ég fletti dagblöðum, horfi á fréttir eða eins og ég gerði í gærkvöldi, horfði á "Silfrið" hans Egils, þá hrapa ég niður í "ægisvart" þunglindi og tuðarinn í mér brýst fram.

Sálfræðingurinn, sagði að "trukkabílstjórnar" kynnu ekki stradigíuna við mótmæli.  Þeir hefðu eytt sínum sparnaði og lánum í kaup á rándýrum atvinnutækjum og sætu uppi með það, hann aftur á móti hefði menntað sig og þess vegna veit hann sjálfsagt allt um stradegíu mótmæla!GetLost

Þingfréttaritarinn vissi af "mótmælaskóla" einhverstaðar í Afríku held ég að hún hafi sagt og dró upp fagra mynd af "faglegum mótmælum"!Sleeping

Þingmaðurinn dirfðist að minnast á undir kraumandi óánægju þegnanna, en var kveðinn í kútinn af "faglega" "stradegíu" fólkinu!

Rithöfundurinn was my man!  Mikið vildi ég að það hefði tekist að koma honum á þing á sínum tíma.  Hann virðist hafa góða sýn á þankagang þjóðarinnar.Cool

Gafst upp í miðju viðtali við utanríkisráðherrann, því það læknaði mig síður en svo af svartsýnis tuðinu.

En er nokkuð skrítið að við tuðarar séum langt niðri.  Hér eru sýnishorn af fréttum dagsins á Mbl.:

Helst í fréttum

Ég er sammála talsmönnum ASÍ um að verðbólgan sé skelfileg.  Verða þá sett lög á flugstjóra og flugfreyjur. Landsspítala "háskólasjúkrahúsi" verður kannski bara lokað og aðrir væntanlegir kröfuhafar um betri kjör verða bara múlbundnir eða gasaðir???.Whistling

 Nú hafa launþegasamtök 2 daga til að koma sínum umbjóðendum í gegnum "mótmælendanámskeið" sem kennir okkur, hinum tuðandi almenningi "stradegíuna" fyrir 1. maí. 

"Fram þjáðir menn í þúsund löndum"

P.s. Svo eru Norsarar farnir að stela frá okkur!  Þeir halda kannski að Haarde hafi fengið yfirráðin fyrir hönd "föðurlandsins". Tounge


mbl.is Verðbólgan „skelfileg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Hallgerður undiralda er aldrei góða og hún er t.d. það eina sem getur komið af stað sjóveiki hjá mér. Þannig er þetta greinilega með þig Sigrún þú ert með einhverja fjandans sjóveiki í þesari undiröldu þjóðfélagsin og ælir upp öllu sem þú getur til að létta á þér. - Asskoti góður pistill hjá þér.

Haraldur Bjarnason, 28.4.2008 kl. 15:11

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Flottur pistill Sigrún!

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 28.4.2008 kl. 17:17

3 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Ég mun taka undir í baráttusöngnum !!!

Halldóra Hannesdóttir, 28.4.2008 kl. 21:39

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góður pistill.  Já undiraldan er þung núna.

Hólmdís Hjartardóttir, 29.4.2008 kl. 00:45

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Megia nojararnir ekki bara eiga Geir, og við fáum einhvern í staðinn sem getur stjórnað af visku og ábyrgð ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband