Leita í fréttum mbl.is

Hvaða kreppa???

Ég er að lesa það út um allt að það sé skollin á kreppa!!!  Af hverju hef ég misst?  Þarf ekki að ríkja velmegun áður en að kreppan skellur á?  Hvar var þessi velmegun? Woundering

Það hefur ekki ríkt nein velmegun hjá fólki, sem vinnur við umönnunarstörf, það vita það allir.  M.a.s. stjórnmálamenn hafa vitað það lengi og þeir eru nú ekki þekktir fyrir að vera meðvitaðir um ástand mála hjá almúganum.

Fyrir síðustu alþingiskosningar var ekki þverfótað fyrir frambjóðendum, sem hver í kapp við annan létu þá skoðun sína í ljós, að bæta þyrfti kjör starfsfólks í hjúkrunar- og skólageiranum.  Uppeldis- og umönnunarstéttir hafi setið á hakanum allt, allt of lengi og laun þessa fólks væru til skammar í samfélagi, sem telur sig vera fyrirmyndarþjóðfélag.

Nú er loksins komið að því.  Kjarasamningar þessara stétta eru að renna sitt skeið og í nýjum kjarasamningum á að ”lagfæra” kjörin.  M.a.s. menntamálaráðherra sagði nýlega án þess að blikna, að laun kennara þyrftu að hækka umtalsvert.  Ekki hef ég heyrt Gulla heilbrigðis, taka svona sterkt til orða, en hann er náttúrulega á fullu í hagræðingunni (einkavæðingunni m.ö.o.), svo einhverjir peningar verði í kassa fjármálaráðherra fyrir komandi kjarasamninga.Cool

Það eru alltaf til peningar í ríkiskassanum þegar byggja þarf sendiráð úti í hinum stóra heimi og líka þegar ráðamenn flengjast um heiminn þveran og endilangan til þess að því er þau segja: kynnast aðstæðum fólks í hinum ýmsu löndum frá fyrstu hendi.

Það eru líka til peningar (t.d. símasölupeningar), þegar byggja þarf  nýtt og flott sjúkrahús og fyrir hverjar kosningar er hægt að taka skóflustungur fyrir nýjum hjúkrunarheimilum, sem ekki verður hægt að manna með íslensku fagfólki, vegna þess að launakjörin eru út takt við íslenskan raunveruleika.Frown

En þetta er allt í lagi börnin góð.  Það er sko ekkert skollin á kreppa.  Ég er bjartsýn og trúi því, þangað til annað kemur í ljós, að þetta sé bara reglubundin fyrirsamningaskjálfti (eins og fyrirtíðaspenna!), sem er nauðsynlegur í samningaferli opinberra starfsmanna.  Svona eins og póker, sem getur víst gefið mikið í aðra hönd, ef vel er á spilunum haldið.Bandit

ASÍ spilaði af sér, það er alveg augljóst.  En það munu menn eins og Ögmundur Jónasson ekki gera, ekki séns.Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

já góð spurning hvað er kreppa En jeppa á 16 millur ja hérna dýrt að fara á milli húsa á svona millum 

Brynja skordal, 27.3.2008 kl. 00:19

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þá er bara að bíða og sjá.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2008 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband