Leita í fréttum mbl.is

Ömmuhelgi!

Já, ég held að það sé réttnefni á þessa helgi hjá mér.  Í kvöld er ég að passa stóra 3ja ára strákinn hann Róbert Skúla. 

Hefðbundið föstudagskvöld hjá okkur.  Hann elskar spurningaþætti og Gettu Betur stóð undir okkarRóbert að ulla! væntingum.  "það var rétt" glumdi nokkrum sinnum hjá mínum manni og þegar þætti lauk voru úrslitin að hans mati að, stóru strákarnir hefðu unnið þetta!Wink

Þar sem ég er stödd á hans heimili var rútínan fyrir svefninn með þeim hætti, sem hann er vanur:  Amma, ekki pissa fyrst!  Sko, fyrst bursta tennur, svo pissa, svo þvo sér, svo drekka smá mjólk, svo lesa bók, svo syngja og svoooooo sofa!  Og þetta gekk eftir, eins og stafur í bók.  Ef foreldrasettið hefur eitthvað við þetta að athuga, verða þau bara að breyta forritinu. Halo

Á morgun fer ég svo að passa Ericu Ósk, bráðum 1 árs.  Það verður spennandi, því á þessum aldri eru breytingarnar svo miklar á milli heimsókna.  Ég hef ekki séð barnabörnin í 3 vikur, vegna flensu, vinnu og svo þurfti "Nóri" að skella sér í heimsókn til mín í þessari viku!

Ég veit ekki hvort ég næ að hitta elsta barnabarnið, hana Kristrúnu Amelíu, en ég mun reyna! 

Ömmuhelgar eru æðislegar! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Njóttu vel

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 29.2.2008 kl. 23:39

2 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Ég hitti 3 mánaða barnabarnið mitt í gær. Finnst ennþá hálf skrítið að vera orðin amma.

Mér finnst litla stúlkan mín vera yndislegasta barn sem ég þekki og hlakka alltaf til að hitta hana.

Anna Kristinsdóttir, 1.3.2008 kl. 12:15

3 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Þú ert rík kona

Bestu kveðjur úr heimahögunum.

Halldóra Hannesdóttir, 1.3.2008 kl. 12:36

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlitið mínar kæru!

Það toppar náttúrulega ekkert móðurhlutverkið Anna mín... en þú ert væntanlega farin að finna að ömmuhlutverkið kemst svo ótrúlega nálægt því, að varla má á milli sjá!

Hallgerður, ömmur mega! það gerir gæfumuninn fyrir okkur.  Hugsa sér að moggabloggið hafi fært mér frændgarð, sem hingað til voru bara nöfn á blaði hjá Kára klára!

Sigrún Jónsdóttir, 1.3.2008 kl. 13:59

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér finnst ömmuhlutverkið toppa mömmuhlutverkið Sigrún mín, vegna þess að þegar við erum orðin afi og amma, þá um leið erum við nógu þroskuð til að vita að tíminn skiptir óendanlega miklu máli, og erum orðin miklu þolinmóðari og færari um að gefa þeim sinn tíma.  Ekkert stress, bara ömmuhress njóttu þín á ömmuhelgi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.3.2008 kl. 15:01

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir Ásthildur.

Þetta með að ömmuhlutverkið toppi mömmuhlutverkið.....er óopinbert leyndarmál!  Ekki viljum við að börnin okkar haldi að þau hafi bara verið æfing fyrir ömmuhlutverkið.

Eina amman sem ég fékk að njóta, fór fljótlega á goðastall hjá mér....ég skil það í dag, af hverju það var!

Sigrún Jónsdóttir, 1.3.2008 kl. 16:01

7 identicon

Vá hvað ég hlakka til að verða amma  En já Sigrún mín þessi rútína var alveg rétt og ég trúi því vel að barnið hafi stoppað þig af að láta hann pissa áður en bursta tennur, slíkt er náttúrulega glæpur

Enn og aftur takk fyrir pössunina

Guðrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband