Leita í fréttum mbl.is

Okkar minnsti bróðir!

Er verið að lýsa ástandi í einu ríkasta ríki jarðar?

Á bak við þessa 111 einstaklinga eru margfalt fleiri einstaklingar, sem hafa í flestum tilvikum liðið vítiskvalir vegna úrræðaleysis "hins opinbera" í málefnum þessa fólks.

Heimilisleysi er ávísun á geðveiki, það er ekki spurning í mínum huga.  Enda skilst mér að það sé bundið í stjórnarskrá að allir eigi rétt á þaki yfir höfuðið. 

Kannski væri rétt að aðstandendur þessara einstaklinga, skjóti máli sínu til mannréttindadómstóls og fái úr því skorið hvort ekki sé verið að brjóta stjórnarskrárbundinn rétt á þessu fólki. 


mbl.is 111 manns á götunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Stjórnarskráin er brotin á hverju degi af íslenskum ráðamönnum og embættismönnum. Hún er bara upp á punt. Það ríkir ráðaleysi og ringulreið vegna valdatafls æðstu manna í þjóðfélaginu. Hvað heldur þú að þeir hafi tíma til vinna það sem þeir voru ráðnir í, þegar alur tíminn fer í að rífast um hver á að sitja hvar! Þetta er eins og lítil börn að rífast um leikföng..

Óskar Arnórsson, 23.2.2008 kl. 18:16

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Fann þetta á Vikipedia, skýringar á Stjórnarskrá Íslands.  Sel þetta ekki dýrara en ég keypti það!

7. kafli er svonefndur mannréttindakafli og fjallar um rétt hvers manns sem er staddur á landinu. 1. greinin í kaflanum segir að „allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti“.

Ég held það hljóti að teljast til mannréttinda að hafa húsaskjól hér á þessu ísa kalda landi!

Mitt starf felur akkurat það í sér að aðstoða fólk.  Ég sinni einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma og við höfum gott húsaskjól og góða heilbrigðisþjónustu.  Ég vildi óska þess að allir fengju eins góða þjónustu og skjólstæðingar mínir.

Sigrún Jónsdóttir, 23.2.2008 kl. 23:34

3 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Að gefnu tilefni:

Í 25. grein mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna er að finna ákvæði sem fela í sér tilvísun til réttar til öruggra lífskjara, þar á meðal húsnæðis. Sum ríki hafa auk þess sett í stjórnarskrár sínar réttindaákvæði er varða húsnæði og ákvæði af þessu tagi eru hluti af sameiginlegum réttindum ríkja í Evrópusambandinu.

Þrátt fyrir öll slík réttindaákvæði er rétturinn til húsnæðis víða um heim í vaxandi mæli fyrir borð borinn, jafnt í háþróuðum ríkjum Vesturlanda sem í fátækari löndum í suðri og austri, eins og  fjölgun heimilislausra er gleggst vitni um.

            Hér á Íslandi kveða lög um félagsþjónustu sveitarfélaga frá árinu 1991, með síðari breytingum, á um skyldur sveitarfélaga við að tryggja öllu íbúum sínum aðgang að húsnæði við hæfi. Þrátt fyrir þetta er engan veginn sjálfgefið að hver og einn sem lendir í húsnæðishraki eigi á vísan að róa hvað snertir húsnæði ef viðkomandi snýr sér til sveitarfélagsins.

Þetta er góður pistil og öllum þörf áminning.

Anna Kristinsdóttir, 25.2.2008 kl. 11:19

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Stelpur, Hallgerður og Anna þið eruð fyrsta flokks mannvinir!

Sigrún Jónsdóttir, 25.2.2008 kl. 16:12

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er hræðilegt að heyra þetta.  Og svo talar forsætisráðherrann þessi sem nýtur mests trausts samkvæmt skoðanakönnunum, að hér sé allt í svo góðu lagi, og ríkiskassinn troðfullur.

Ja svei því bara.  Það var sláandi þegar sonar sonur minn tilkynnti í kennslustofunni þegar verið var að ræða um fátækt, að mamma sín væri á götunni og ætti hvergi heima.  Einu sinni var svona bara til í útlöndum, hvar höfum við farið út af sporinu ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 16:48

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sæl Ásthildur og takk fyrir að koma í bloggvina hópinn minn!  Þú ert með svo skemmtilegar fréttir að vestan, sem eru mér svo nauðsynlegar.

Úrræðaleysi þeirra sem stjórna velferðasamfélaginu Íslandi er til skammar.

Sigrún Jónsdóttir, 25.2.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband