Leita í fréttum mbl.is

Fyrrverandi leiðtogar!

Ég var að hlusta/horfa á Jón Baldvin Hannibalsson í hádegisviðtalinu á stöð 2.  Allir hafa skoðun á þessum ágæta manni, líka ég.  Það má…. því hann hefur sjálfur skipað sér á bekk, sem “opinber persona”.

Mér hefur yfirleitt, fundist hann skemmtilegur, en oft hrokafullur og montinn.  Í dag fannst mér hann vera þetta allt.

Jón Baldvin hlýtur að hafa verið skemmtilegur kennari, og hefur örugglega ekki átt í vandræðum með að vekja áhuga á námsefninu.  En miðað við hvað honum finnst hann vera svakalega klár, er alveg ótrúlegt að undir hans forystu skyldi Alþýðuflokkurinn gamli verða að smáflokki.

Mér sýnist að staðan sé sú í dag að allir gömlu fjórflokkarnir ”eigi sinn djöful að draga” og að allir séu þeir komnir með sína gömlu formenn í hálfgerða andstöðu við núverandi yfirlýsta stefnu flokkanna eins og þeir líta út í dag.

Vofa Davíðs Oddsonar er yfir og allt í kring hjá Sjálfstæðismönnum!

Framsóknarmenn hafa átt við þennan vanda síðan Steingrímur Hermannsson, steig niður fyrir Halldór Ásgrímsson og allir vita hvern hug Guðni Ágústsson ber til fyrirvera síns.

Jón Baldvin hefur í einhver skipti komið, glottandi, með ”vinsamlegar” ábendingar til Ingibjargar Sólrúnar, sem að hans mati er ”varkár”, en hún ætti ekki að velkjast í vafa um hvað hann myndi gera!

Síðast en ekki síst er Margrét Frímannsdóttir, f.v. formaður gamla Alþýðubandalagsins, himinlifandi yfir að vera ekki í daglegu sambandi og argaþrasi við sína fyrrverandi samflokksmenn, sem í dag skipa forystusveit Vinstri Grænna!

Er það nokkuð skrítið að stofnað sé til nýrra stjórnmálaflokka með reglulegu tímabili hér í landi konungborinna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband