Leita í fréttum mbl.is

Get ég byrjað að trúa.....

á réttlæti?

Ég efast ekki um að það hafi þurft kjark og áræðni til að koma fram með þessi neysluviðmið.  Takk fyrir Guðbjartur Hannesson.

Það er nefnilega þannig að þeir sem telja sig "eiga" Ísland og stjórna því leynt og ljóst á bak við tjöldin hafa barist gegn því að eitthvað í þessa áttina yrði lagt fram.

Hvað þarf einstaklingur að hafa í laun fyrir skatta og aðra skylduborgun til þess að eiga eftir kr. 291.932.- sem reiknað hefur verið út sem "neysluviðmið"?

Hvað segir LÍÚ við þessu útspili Velferðarráðuneytisins?  Hvaða væll ætli komi frá Vilhjálmi Egilssyni hjá SA í fréttum kvöldsins?  Síðast en ekki síst verður fróðlegt að vita hvað þessir "nægjusömu" hjá ASÍ munu láta frá sérDevil 

Hvað gerir Tryggingastofnun í framhaldinu....og já, hvað gera öll velferðaráðin vítt og breitt um landið? nú eða Vinnumiðlun, sem hingað til hefur talið 150 kall nægilegan til framfærslu atvinnulausra án tillits til skuldastöðu......

Á ég að þora að vona að þetta skref Velferðaráðherrans sé fyrsta skref í áttina að réttlátu samfélagi, þar sem allir fái sinn skerf af kökunni?

 

 


mbl.is Viðmið einstaklings 292 þús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með þér Guðbjartur Hannesso er vaxandi stjórnmálamaður. Stendur með báða fætur á jörðínni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.2.2011 kl. 17:49

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir þennan ágæta pistil. Á bak við tjöldin, já en meira leynt en ljóst. Stjórnmálamenn hafa tryggt sér sérkjör á meðan þeir hafa verið að sökkva almenningi í fátækt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.2.2011 kl. 23:11

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég þakka innlit og undirtektir kæru konur  Er orðin hálf ryðguð í blogginu en ég gat ekki orða bundist þegar þessar fréttir bárust.  Hef sjálf verið í hópi þeirra sem hafa barist fyrir því að til yrði "opinbert neysluviðmið" og miðað við hvað lítið hefur heyrst í vælukjóum eða varðhundum "eigendanna"....hljóta þeir að vera kjaftstopp

Sigrún Jónsdóttir, 8.2.2011 kl. 00:05

4 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Guðbjartur hafði alla fyrirvara á þessu - sagðist rétt "hafa fengið að kíkja á tölurnar þegar nefndin var að ganga frá þessu" - Þessi sami maður talaði fjálglega um skjaldborg um heimilin o.fl.

hef enga trú á þessum tölum - ef hann vill gera eitthvað til þess að sanna sig ætti hann að taka til í vinnubrögðum TR -

Þar er önnur helstefna ríkjandi við hlið helstefnu stjórnvalda.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 8.2.2011 kl. 04:26

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ólafur Ingi, Guðbjartur benti á að t.d. Tryggingastofnun gæti haft þessi viðmið til hliðsjónar og hann útilokaði ekki að fastar yrði kveðið að varðandi lágmarks framfærslu í haust eða alla vega á þessu ári. 

En eigum við ekki að gefa þeim sem um launamál eiga að fjalla tækifæri til að sýna til hvaða viðbragða þau ætla að grípa?  Velferðarráðherrann hefur ekkert með launamálin að gera en nú hefur hann látið birta hvaða viðmið hann telur að eigi að miða við.

Sigrún Jónsdóttir, 8.2.2011 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband