Leita í fréttum mbl.is

Þetta peð víkur ekki fyrir biskupi!

Kirkjan er mál málanna í dag.  Því er oft haldið fram að ef þú viljir forðast rifrildi og erjur, þá ræðir þú ekki um pólitík eða trúmál.

Ég er ekkert svakalega trúuð, á mínar barnabænir og reyni að lifa samkvæmt siðferði kristinnar trúar.  Ég hef stundum sagt að trúmál Íslendinga séu svolítið sér á parti, svolítil hentistefna þar eins og víðar í samfélagsmunstrinu.  Aðfangadagskvöldið hefur alltaf verið okkur "heilagt" eins og auglýsingin frá Verslunarmannafélaginu lýsir svo undurvelWink....þar sem búðardaman er steinsofnuð í forréttinumGrin

Mitt trúarlega uppeldi fór fram við eldhúsborðið heima og í sunnudagaskólanum hjá Sr. Jóhannesi Pálmasyni.  Sumum finnst kannski skrítið að ég hafi fengið mitt trúarlega uppeldi við eldhúsborðið af öllum stöðum, en það var bara þannig að þar fór siðferðiskennslan fram, ekki bókstaflega, heldur var það þannig að þar fékk ég að vita hvað mátti og hvað ekkiSmile  Hvernig ég átti að koma fram við aðra og hvað væri við hæfi hverju sinni.  Svo laumaði hún Sigga amma mín að mér ýmsum gullmolum sem hafa lifað með mérHeart

Sr. Jóhannes Pálmason 1946Sr. Jóhannes var alveg frábær, maður missti ekki af sunnudagaskóla hjá honum.  Hann las fyrir okkur spennandi barna- og unglingasögur, sem eflaust höfðu einhvern boðskap að geyma en skemmtilegar voru þær og framhaldið kom í næsta sunnudagaskóla, því hann þýddi þær um leið og hann las, svo þetta voru ekki einhverjar bækur sem við áttum von á að fá í jólagjöfCool

Við sungum Áfram Kristsmenn krossmenn og fleiri KFÚM söngva og fengum hinar hefðbundnu Jesúmyndir.

Sr. Jóhannes, skírði mig og fermdi en hann var fallin frá þegar ég gifti mig svo það er ekki skrítið að sú gifting hafi ekki enstWink  annað hefur haldið.

Ég sótti líka "fullorðinsmessurnar" hjá Sr. Jóhannesi af því að ég þurfti að labba með ömmu í kirkjuna þar sem hún var blind og mamma þurfti alltaf að fara fyrr þar sem hún var í kórnum.  Pabbi fór ekki í messuWink  Í þessum "fullorðinsmessum" lærði ég ýmislegt um óréttlætið í heiminum, fátæktina og stríðin.  Þorpsbúar sögðu Sr. Jóhannes óþarflega vinstrisinnaðan í pólitíkinni, gott ef hann var ekki stimplaður kommúnistiLoL...en allir elskuðu manninn (prestinn).  Á aðfangadagskvöld fóru allir heim eftir guðsþjónustu með hálfgerða sektarkennd vegna svöngu barnanna í KongóPouty en það rjátlaðist af manni eftir jólamatinn, gjafirnar, konfektið, mömmukökurnar, kakóið og bókina sem fyrst var lesin.

Jón Víðir   SuðureyrarkyrkjaÉg tel mig sem sagt eiga góðar minningar tengdar kirkjunni frá minni æsku.  Svo góðar að mér finnst í rauninni alveg ómögulegt að ég þurfi að víkja frá þessari kirkju, sem ég skírðist og fermdist til.  Ég hef að ég tel ekki gert neitt saknæmt af mér, þannig að kirkjan er mín eins lengi og ég hef list á. 

Það eru samt menn þar inni á gafli, sem mér finnst hafa fyrirgert rétti sínum á "brauðinu" og ef þeir hafa fengið sama trúarlega uppeldið og ég, þá myndu þeir sjá sóma sinn og víkja til hliðar .....ekki úr kirkjunni heldur frá trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna okkar.

Ég get ekki stillt mig um að segja frá þeirri skoðun minni að allir þeir biskupar/prestar sem ég tel að eigi að víkja hafa tileinkað sér alveg ótrúlega væmna framkomu tökum sem dæmi; Sr. Karl, Sr, Hjálmar og Sr. Pálmi....hvað er að svona fólki? 

Ég er bara "peð" en ég mun aldrei víkja fyrir siðspilltum biskupi!

In the name of Lennon - Peace & Love Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Einlægt og gott uppgjör vinkona. Dálítið gamaldags eins og Lennon :)

kv,

Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2010 kl. 22:58

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Svanur I love you, gamli skólafélagi

Sigrún Jónsdóttir, 28.8.2010 kl. 23:04

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Stórskemmtilegur pistill.

Takk fyrir Sigrún.

Jóhannes Ragnarsson, 28.8.2010 kl. 23:40

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Jóhannes

Sigrún Jónsdóttir, 28.8.2010 kl. 23:46

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einz & malað út úr mínu nýra, gæzkan & znilldarlega framzett.

Steingrímur Helgason, 29.8.2010 kl. 00:08

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Zteingrímur, þykir vænt um þetta komment

Sigrún Jónsdóttir, 29.8.2010 kl. 00:17

7 Smámynd: Ragnheiður

Flottur pistill og ég er hjartanlega sammála þér, ég verð heldur ekki hrakin úr minni kirkju

Ragnheiður , 29.8.2010 kl. 01:17

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góð betri bezt :)

Hrönn Sigurðardóttir, 29.8.2010 kl. 08:33

9 identicon

Takk fyrir þetta innlegg , Sigrún mín .Þetta er eins og talað út úr "mínu" .

Jóna S Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 29.8.2010 kl. 09:41

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

takk fyrir Ragga og Hrönn

Sigrún Jónsdóttir, 29.8.2010 kl. 10:16

11 identicon

Gott kæra vinkonaeins og alltaf.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 29.8.2010 kl. 14:25

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á þig Eyja pæja

Sigrún Jónsdóttir, 29.8.2010 kl. 16:48

13 Smámynd: Halla Rut

Presturinn sem fermdi mig í Ölduselinu var nú ekki svona eins og presturinn þinn heldur harður, grimmur og frekur enda var hann seinna, löngu seinna, kærður fyrir ofbeldi gagnvart einu fermingabarni sínu. Kom mér ekki á óvart. Fermingasystkini mín hræddust hann og töluðu ævinlega kalt um þennan blessaða mann  sem kleip, ýtti og talaði hvasst til saklausra barna. Engin var söngurinn heldur vorum við látin taka próf í Guðfræðunum og þeir sem féllu var tilkynnt að þau fengju ekki að fermast.

Flott færsla hjá þér og einlæg. Ef þessir menn mundu sjálfir trúa því sem þeir predika þá mundu þeir víkja. En það gera þeir seint því ólíkt lærisveinum Jesú þá hugsa þeir aðeins um eigin hag og fórna engu.

Halla Rut , 30.8.2010 kl. 00:03

14 identicon

Hvað ungur nemur gamall temur; Þú ert bara að segja okkur hversu viðkvæm barnssálin er fyrir áróðri...  Það er líka ástæða þess að trúarbrögð sækja svo mikið í börn.

doctore (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 10:00

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit  Halla Rut  og doctore   Áróðurinn sem þú minnist á doctore var að mínu mati eðlilegt uppeldi, sem eins og ég sagði fór fram við eldhúsborðið heima  Sunnudagaskólanum misstum við ekki af vegna framhaldssögunnar, sem Sr. Jóhannes las....annað var aukaatriði

Auðvitað eru prestar misjafnir eins og annað fólk og það er gott, því ekki viljum við að allir séu steyptir í sama mótið.   Presturinn okkar var hagyrðingur mikillog samdi gamanvísur fyrir allar uppákomur, hvort sem það voru barnaskemmtanir eða þorrablót.

Ég skrifaði þessa færslu af því mér var farið að leiðast þessi múgsefjun í sambandi við að láta skrá sig úr þjóðkirkjunni.   ....og hvað svo? Skrá sig í Fríkirkjuna t.d. þar sem hinn ágæti prestur Sr. Magni ræður húsum?   Gott og vel, en má ég þá minna á að Sr. Gunnar Björnsson var þar einu sinni hæstráðandi......

Ég er í eðli mínu löt og vanaföst, þarf nokkrum sinnum um ævina að nýta mér þjónustu kirkjunnar og á meðan ég hef sjálf ekki brotið af mér finnst mér ósanngjarnt að ég víki.....

Aftur á móti myndi ég gjarnan vilja sjá aðskilnað ríkis og kirkju

Sigrún Jónsdóttir, 30.8.2010 kl. 11:19

16 identicon

Ef þú skráir þig úr þjóðkirkju þá fara þeir skattar sem áður fóru til kufla.. til ríkisins... Já ég borga meira til samfélagsins en trúaðir, þeir trúuðu telja sig væntanlega vera að standa undir gatnagerðargjöldum í himnaríki, þar sem götur og torg eru gerð úr gulli...

Málið er bara að um leið og fólk skráir sig inn í trúarbrögð; Kristni, íslam.. whatever, þá er fólk að segja að guð sé fábjáni.... það stendur í bókunum

doctore (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 12:29

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Jíiiisús  kræst, og heldur þú virkilega að ég vilji hækka skattana mína....svona sjálfviljug  Ég er lítið að spá i "gatnagerðargjöldin í himnaríki" held að fórnarlund sjúkraliðastarfsins hljóti að fleyta mér á dúnsæng þar efra

Bíð þér svo góðan og "blessaðan" dag þar sem eftir lifir.....og dríf mig í vinnuna

Sigrún Jónsdóttir, 30.8.2010 kl. 13:43

18 identicon

Nauts láttu ekki svona.. .ég er að segja að þær 5000 milljónir sem íslendingar borga prestum... ef þú ert ekki í trúfélagi þá fer það til ríkisins..

Ég hef lengi haldi því á lofti að þessar skatttekjur verði teknar af kirkju, að þær verði eyrnamerktar í aðstoð til handa fátækum og sjúkum... en prestar og fólk sem telur sig vera að borga gatnagerðargjöld í himnaríki vill alls ekki heyra þessa hugmynd mína... sem kemur til af því að fólkið sem er kristið fær þá ekki aðgengi að götum himnaríkis og svona...

Það er það sem ég er að segja.. en ég er náttlega siðlaus með öllu :)

doctore (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 13:50

19 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hahaha...  Sjáumst vonandi rúntinum í himnó

Sigrún Jónsdóttir, 30.8.2010 kl. 14:46

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott samantekt hjá þér Sigrún mín, og ég er sammála þér með prestana sem þögðu, þeir eiga bara að halda áfram að þegja og farsa.  Séra Sigurður fræddi okkur börnin um kristnifræði, hann sagði við okkur; krakkar mínir hvort var nú Jerúsalem Borg eða fiskur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.8.2010 kl. 10:31

21 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir innlit kæra Ásthildur.  Ég held að við vestfirsku brussurnar séum "jarðbundnari" en margir í kristnu fræðunum

Sigrún Jónsdóttir, 31.8.2010 kl. 13:14

22 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Góð og einlæg Sigrún mín ;-)

Jóhanna Magnúsdóttir, 31.8.2010 kl. 14:35

23 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk Jóhanna og Jóna þarna fyrir ofan, var ekki búin að sjá þig

Sigrún Jónsdóttir, 31.8.2010 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband