Leita í fréttum mbl.is

Sambandsslit!

Ég var að hætta í sambandi.  Veit að ykkur kemur það ekkert við, en veit líka að sumir hafa verið að velta því fyrir sér af hverju ég er svona löt að skrifa þessa dagana og enn aðrir eru að velta því fyrir sér hvernig mér líður og svona, bæði vegna sambandsslitanna og veikindanna sem ég „lenti í"Pouty

Sambandsslit eru alltaf erfið og jafnvel sorgleg.  Sérstaklega þegar sambandið hefur varað í langan tíma og verið jafn „tryggt" og þetta fyrrverandi samband mittFrown

Stundum verður maður bara að taka ákvörðun; hingað og ekki  lengra ákvörðun ef þannig má að orði komast.  Þetta samband var mig lifandi að drepa, bókstaflega, hvorki meira né minnaHalo

Ég var búin að velta þessum sambandsslitum fyrir mér í mörg ár, var m.a.s. búin að eignast „meðal" sem átti að virka og ljúka sambandinu án þessara venjubundnu aukaverkana......

Einhver hluti af mér hefur viljað lifa lengur því  líkaminn tók völdin „dauðabjallan" hringdi  - eitt stykki hjartaáfall - þræðing  - blástur - fóðrun !  Ekkert smá heppin....ég lifiWizard

Sambandsslitin voru óumflýjanleg og áttu sér stað á hinum eina sanna „Lokadegi", þann  11. Maí sl.  Þetta var ekki eins erfitt og ég hafði gert mér í hugarlund og mér líður alveg ágætlega takk fyrir, en það getur vel verið að heilastarfsemin sé ekki eins virk og hún áður var, þannig að færslurnar koma bara „ef þær koma" ....allt einhvernvegin í „slow motion" og gerir bara ekkert tilWink

Nú er ég komin í góðan hóp kvenna (Ragga  og Ía t.d.), sem eru HÆTTAR AÐ REYKJAWhistling

.........og er á meðan er.  Það er náttúrulega smá pressa að glutra þessu inn á internetiðPolice

stop_smoking.jpg

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju og velkomin í hóp þeirra sem þetta framkvæmdu, ég veit að það er ekki auðvelt, en hef nú samt engar áhyggjur af þér ja bara vegna glettninnar í færslunni þá er þetta létt og lagott.

Þú bara ropar yfir okkur ef þig vantar útrás, það eru komin 5 ár hjá mér, 4 júní og mig langar aldrei í sambandið aftur.

Ljós og kærleik til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.5.2009 kl. 21:37

2 Smámynd: Rögnvaldur Þór Óskarsson

Góðar óskir um  bata á sál og líkama, gangi þér allt í haginn.

Hlýjar hugsanir og kveðjur

Rögnvaldur Þór Óskarsson, 27.5.2009 kl. 21:51

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ertu þá now listed as single á facebook?

Hrönn Sigurðardóttir, 27.5.2009 kl. 21:53

4 identicon

Til hamingju með það Sigrún mín.  En mundu mér er sagt að 11 árið sé erfðast. Gangi þér vel..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 21:53

5 identicon

Dugleg.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 21:59

6 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Góð.........var lengi að velta fyrir mér hvað fyrrverandi myndi hugsa við að lesa um að þú hafir lengi velt fyrir þér að henda honum. Ótrúlegt hvað fólk skrifar á þessi blogg.

Þegar ég sá hver þessi fyrrverandi var.......þá fauk samúðin.

Til hamingju og gangi þér vel.

Kristjana Bjarnadóttir, 27.5.2009 kl. 22:15

7 identicon

Duglegust!

Gangi þér vel, Sigrún mín. Það var gott að þessi sambandsslit áttu sér stað.

Baráttu - og kærar kveðjur

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 22:17

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk "eskurnar" fyrir innlit og hlýjar kveðjur

Hrönn, Já - helduru að ég fái frið?

Sigrún Jónsdóttir, 27.5.2009 kl. 22:21

9 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Æi, alltaf erfitt. Ég safna fyrrverandi kærustum, fer minna fyrir þeim en t.d. af safna bollum sem ég gerði um tíma. Vona að þú náir heilsu á alla enda og kanta ljúfan.

Rut Sumarliðadóttir, 27.5.2009 kl. 23:39

10 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha þetta sambandi mátti slitna, ég er enn laus síðan 14 febrúar með einni smá undantekningu. Fékk mér smók daginn sem Alda mín dó, bara einn og hann var vondur. Hef ekki séð ástæðu til að endurtaka það geim.

Knús

Ragnheiður , 27.5.2009 kl. 23:50

11 identicon

Gangi þér vel ljúfust min ;)

Guðrún Ing (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 23:55

12 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Til hamingju með sambandsslitin, gangi þér allt í haginn

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.5.2009 kl. 00:03

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Innilega til hamingju með sambandsslitin, þau hafa verið löng og ströng. 

    En þú heldur í hefðirnar, 11. maí lokadagur, og í gamla daga byrjuðu fardagarnir líka 11. maí, þá mátti vinnufólkið (þrælarnir) fara úr vistinni ef þau höfðu löngun til.  Og það hefur þú semsagt gert.  Gangi þér vel.

 - Ég veit hvað þú ert að ganga í gegnum, en ég veit líka hvað þér líður miklu betur á sál og líkama.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.5.2009 kl. 00:15

14 Smámynd: Steingrímur Helgason

Skil ekki fólk sem að reykir ekki, en ...

Ég á verra með að skilja fólk sem að veit hvað það er gott að reykja & hættir samt.

En svo er nú líka til í dæminu að ég þarf ekkert endilega að skilja sumt, hvað þá kryfja til enda margt.

Veit líka á eigin skinni að þetta er meinóhollur & sóðalegur viðbjóður.

Þannig að ég 'gratjúlera' þér vinkona mín.´

Enda er ég ennþá bjáninn....

Steingrímur Helgason, 28.5.2009 kl. 00:24

15 Smámynd: Aprílrós

Gangi þér vel Sigrún min ;)

Aprílrós, 28.5.2009 kl. 07:51

16 Smámynd: M

Þú virkar sterk kona á mig og ferð létt með þetta

M, 28.5.2009 kl. 10:09

17 Smámynd: Marta smarta

Gangi þér vel Sigrún mín, við erum semsagt á sama stað, sambandsslit hjá þér skilnaður hjá mér. Heilsuvandi hjá okkur báðum En við spjörum okkur, vittu til. 

Baráttukveðjur

Marta smarta, 28.5.2009 kl. 17:21

18 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju og stattu þig, stelpa. Ég er alveg rígbundin í þessari sambúð ennþá en vonast til að andinn komi yfir mig einhvern daginn og ég sæki snarlega um skilnað.

Helga Magnúsdóttir, 28.5.2009 kl. 20:20

19 Smámynd:

Til hamingju með þessi meinhollu og mjög svo tímabæru sambandsslit. Svona hægdrepandi sambönd gera engum gott nema einhverjum körlum úti í heimi sem græða á þeim á tá og fingri. Óska þér góðs bata og að þú megir njóta barnabarnanna vel og lengi.

, 28.5.2009 kl. 22:01

20 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Gott hjá þér og gangi þér vel.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 28.5.2009 kl. 22:16

21 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Frábær framsetning, þú náðir mér þarna á tímabili!  Hélt þú værir að losa þig við óæskilegan kall!

Til hamingju með reykleysið!

Jóga fanatíska!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.5.2009 kl. 23:14

22 identicon

Sæl Sigrún.

Snildarfærsla, til Hamingju !

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 00:17

23 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með þessi sambandsslit, ég gerði slíkt hið sama fyrir 18 árum, þetta er ekkert mál ef maður ætlar.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.5.2009 kl. 15:02

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Innilega til hamingju með skilnaðinn.

Ég er að hugsa um að hætta bara í næstu viku.

Komið nóg.

Baráttukveðjur.  Djö... sem þú ert flott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2009 kl. 17:15

25 Smámynd: Marta smarta

Einmitt, eftir á að hyggja var þetta ekki svo mikið mál, rúmlega 12 ár síðan, en ég er enn að tyggja tyggjó, reyndar bara venjulegt, fór aldrei í hitt.  Extra tyggjó er mitt samband í dag........... og svínvirkar.

Marta smarta, 29.5.2009 kl. 17:34

26 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Velkomin i hóp þeirra sem eiga afkláruð sambönd að baki.  Bestu kveðjur á singelnótunum.  :)   Kram!

Baldur Gautur Baldursson, 30.5.2009 kl. 09:09

27 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk öll fyrir innlit og kveðjur

Engar stórar yfirlýsingar frá mér í bili.....nema að þetta gengur alveg ótrúlega vel og það án allra hjálpartækja

Sigrún Jónsdóttir, 30.5.2009 kl. 12:56

28 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Héðan koma ekkert nema hlýjar baráttukveðjur með fullt af knúsi!  Veistu þetta er ekkert mál að slíta svona sambandi alveg sama hversu sterkt það er þetta hefst allt ef viljinn er fyrir hendi, en hann er númer eitt tvö og þrjú.

Verstir eru draumar næturinnar, ég er enn að keðjureykja á nóttunni og losa öskubakka þar sem stubbar og aska fara út um allt.  Ógeðslegt!

Flottust og gott að skrifa sig frá svona hlutum.

Eigðu góðan dag. Já er ekki Hvítasunnan.  Það kallar á hegistund.

Ía Jóhannsdóttir, 31.5.2009 kl. 10:49

29 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til hamingju með þessa góðu ákvörðun þína Sigrún mín og gangi þér vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.6.2009 kl. 08:29

30 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Gangi þér vel Sigrún mín.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 6.6.2009 kl. 18:01

31 identicon

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 23:32

32 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Gott að hætta reykingum á lokadaginn. Til hamingju og gangi þér vel. Ég kem í hópinn bráðum.

Haraldur Bjarnason, 7.6.2009 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband