Leita í fréttum mbl.is

Ljúfur söngur og hjáróma raddir!

Ég "heyrði" i vorinu síðustu tvo morgna, þar sem ég var á næturvakt.  Söngur fuglanna var byrjaður fyrir kl. 06:00 og þessi tónlist var ljúf og notalegJoyful

Annars er það kunnugleg "tónlist", sem farin er að hljóma þetta vorið, þar sem kosningar eru í nándShocking  Yfirboðin og skætingurinn er eitthvað sem ætti að hlífa okkur landsmönnum við um þessar mundir.  Las snilldarfærslu frá góðum "Eyjupenna" núna áðan, sem afgreiðir bæði Tryggva Þór og harða andstæðinga ESB í vel skrifaðri færslu.

Lóan er fallegur fugl og mér þykir ákaflega vænt um hanaHeart


mbl.is Lóan er komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Lóan er yndisleg, alttaf sami gleðigjafinn.   Framboðskvakið er ekki alveg eins skemmtilegur vorboði...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.3.2009 kl. 14:39

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

en lóan er atvinnulaus hér á sv-horninu,,,,,,

Hólmdís Hjartardóttir, 20.3.2009 kl. 16:38

3 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Lóan kemur alltaf elskan uansett stjórnarfar Hafðu góða helgi ljúfa.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 20.3.2009 kl. 16:57

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Lóan er tákn um vorkomuna ekki er hún samt komin í mitt tún, en það kemur.
Knús kveðjur
Milla,

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.3.2009 kl. 17:16

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lóan er komin að kveða burt snjóinn tra la la....

talandi um Tryggva Þór Herbertsson þá fannst mér greinin hans Árna Snævarrs hrikalega góð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2009 kl. 21:46

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Svo ert þetta fiðurfé náttla líka fínn matur !

Steingrímur Helgason, 20.3.2009 kl. 22:24

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnst fuglasöngurinn sem ég heyri á morgnana ótrúlega fjölbreytilegur.  Það eru Starrar sem kunna að búa til svo fjölbreytt hljóð hérna í götunni hjá mér.    Svo heyri ég oft í Lóum, Tjöldum, Hrossagaukum og ýmsum öðrum fuglum hérna á Nesinu. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.3.2009 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband