Leita í fréttum mbl.is

Prófkjörsbaráttan komin á fullt í þingsölum....

Birkir Jón og Höskuldur etja kappi um leiðtogasætið hjá Framsóknarmönnum í NA-kjördæmi.  Spunameistarar flokksins, hafa örugglega bent þeim á að slæmt umtal sé betra en ekkert....

Birgir Ármanns, þingmaðurinn sem engin vissi að væri þingmaður, fyrr en Sjálfstæðismenn hrökluðust frá völdum hefur fengið málið, enda ætlar maðurinn að láta kjósa sig aftur á þing.  

Síðast þegar ég gáði voru Sjálfstæðismenn yfirlýstir andstæðingar Evrópusambandsaðildar en Birgir þessi, þarf að láta ljós sitt skína og vill fresta Seðlabankaumræðu og bíða eftir tillögum frá ESB Sideways


mbl.is Vilja fresta seðlabankaumræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Vantar ekki vín í búðir?

Rut Sumarliðadóttir, 23.2.2009 kl. 13:40

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Birkir Jón hefur a.m.k. ekki náð athygli minni hingað til en það hefur Höskuldur gert fyrir all nokkru. Mér finnst maðurinn reyndar vera í vitlausum flokki en það er annað mál.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 23.2.2009 kl. 13:52

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Líklega hafa framsóknarstrákarnir eitthvað að fela eftir áralangt samstarf með Sjálfstæðisflokki. Bitlingarnir hafa líklega verið orðnir of margir til að geta sópað þeim undir mottuna sem virðist nú þegar hylja heilt fjall af spillingu.  Best að gera Davíð ekki reiðann.  :(  

Baldur Gautur Baldursson, 23.2.2009 kl. 16:09

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þeir eru að misnota alþingi til framboðs.    Framboðsfundir eiga náttúrulega ekki að vera á kostnað alþingis.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.2.2009 kl. 16:15

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Líst reyndar vel á Höskuld...

Hólmdís Hjartardóttir, 23.2.2009 kl. 16:47

6 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Þetta gamla pólitíska lið ætti að hætta að stjórna þessu land þeir stóðu ekki vörð um landið okkar og hafa ekkert með það að fá annað tækifæri. Það er mín skoðun.

Átt þú góðan dag vina.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 24.2.2009 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband