Leita í fréttum mbl.is

Skatan er komin í pottana!

Ég efast ekki um að það muni "sjóða uppúr" í byrjun næsta árs hér á Íslandi.  Æ fleiri gera sér grein fyrir ástandinu og reiði fólks mun aukast, þegar skellurinn hittir okkur af fullum þunga.

En nú er hátíð í bæ og landinn ætlar þrátt fyrir allt að gera sér dagamun og njóta samveru með vinum og vandamönnum.  Það er líka nauðsynlegt að staldra aðeins við og rækta það sem er okkur mikilvægast í lífinu.  Kærleikurinn er sterkasta aflið í heiminum ritaði hún Sigga amma mín í grein sem birtist í riti Kvenfélagsins Ársólar á Súgandafirði í kringum 1930.  Kærleikurinn mun vonandi ríkja á öllum "vígstöðvum" nú yfir hátíðarnarHeart

Í dag fæ ég tækifæri til að hitta bæði vini og fölskyldu í hinum árlegu Skötuveislum, sem mér er boðið í.  Þar mun krauma í pottum en passað verður uppá að ekki "sjóði uppúr"Smile

steina_frimanns.jpgUppúr hádeginu, fer ég til vinafólks míns í Heiðargerðinu, þeirra Steinu og Ásbergs.  Bolvíkingurinn Ásberg passar upp á skötusuðuna og Steina mun með sínu smitandi brosi og skemmtilegheitum halda uppi góðri stemmingu meðal vina, sem sækja þau heim á þessum degi og hafa gert í nokkur undanfarin ár. 

Fann bara mynd af öðrum helmingi veisluhaldara.  Þetta er Steina fasteignasali og minn sérlegur endurskoðandiSmile.

sigga_-_skotuveisla_2007.jpgSeinna í dag, mun ég svo mæta í árlega Skötuveislu, þar sem fjölskyldan mín mun koma saman hjá Siggu systurdóttur og Vigni, hennar manni.  Við vorum svo ótrúlega heppin, mín fjölskylda að Vignir, sem er Skagamaður er líka skötumaðurWhistling  Þetta er eini tíminn yfir hátíðarnar, sem mín fjölskylda hittist öll, því eins og gengur og gerist verður ein lítil kjarnafjölskylda að mörgum, þegar fram líða stundir.

Einhvernvegin er það nú þannig að það þarf einhver góður fjölskyldumeðlimur að byrja svona hefðir og er ég óumræðilega þakklát minni kæru frænku fyrir sitt framtakHeart

Það er misjafnt hverjir geta mætt hverju sinni, því fjölskyldan er dreifð um heimsbyggðina.  Í fyrra mættu t.d. Úlli og hans fjölskylda, sem býr í Ameríkunni.  Jón Þór og fjölsk. eru nú fjarri góðu gamni, þar sem þau eru búsett í Svíþjóð.  Jóna Lára og fjölskylda eru í Danmörku og Abbi bróðir að sjálfsögðu í Ástralíu.  Í dag munum við senda þeim öllum hlýjar kærleikakveðjurHeart

svenni_og_joi.jpgÞessi mynd var tekin í síðustu skötuveislu af bræðrum mínum Jóa og Svenna.  Vonandi mæta þeir báðir í kvöld ásamt sínum niðjum og þeirra fjölskyldumSmile....Ég hlakka svo tilWhistling  

Ég verð örugglega orðin vel "kæst" eftir daginn, en ég veit að það mun ekki "sjóða uppúr" hjá gestgjöfum mínum í dag, en "niðursveiflan"  mun eflaust koma til tals og sitt sýnist hverjum í þeim efnumCool

Eigið góðan dag kæru vinir, nær og fjærHeart

 


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góða skemmtun!

Hrönn Sigurðardóttir, 23.12.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Eigðu góðan dag mín kæra

Hólmdís Hjartardóttir, 23.12.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Ég held að fólk hafi enga einustu hugmynd um hversu harður skellurinn verður á næsta ári. 

Þetta minnir mig á lénsfyrirkomulagið á miðöldum. Tapaði einn höfðingu fyrir öðrum í spilum eða íþróttum eða jafnvel stríði, sendi sá er tapaði leiguliða frá sér til þess sem sigraði, já eða seldi hreint og beint í hendur sigurveigarans. Þetta minnir um margt á það sem er að gerast og á eftir að gerast á Íslandi næsta árið:  Að fólk verður látið vinna upp skuldir spilavítakonunganna.

Næsta ár verður MJÖG erfitt og mikið atvinnuleysi mun skjóta upp kollinum án efa á fyrstu mánuðum ársins þegar gjaldþrotaumsóknirnar fara að renna inn sem á færibandi. 

Hvet Íslendinga að vera forsjálna og þrengja sultarólarnar.

Baldur Gautur Baldursson, 23.12.2008 kl. 12:49

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Úff ég finn næstum ,,fnykinn" af herlegheitunum.  Ét ekki svona mat skal ég segja þér en gaman að vera meðal vina og fjölskyldu á þessum degi.  Njóttu vel vinkona.

Ía Jóhannsdóttir, 23.12.2008 kl. 13:16

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins og hehemmm... matarins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.12.2008 kl. 15:57

6 identicon

Mmmmmm, skata, bauð manninum mínum í skötu á sjúkrahúsinu í hádeginu, hún var góð!

Góða skemmtun, Sigrún mín og njóttu vel skötunnar!

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 18:43

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Gleðileg jól og þakka bloggið á árinu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 23.12.2008 kl. 23:21

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kæru bloggvinir, takk fyrir innlit og innlegg

Dagurinn var fullkominn.  Súgfirsk skata í hádeginu frá Jóa Bjarna, frænda mínum á heimili alls óskildra vina

Kvöldið í faðmi fjölskyldu var eitthvað sem ekki verður toppað á þessu ári

Love you all

Sigrún Jónsdóttir, 24.12.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband