Leita í fréttum mbl.is

Reykjavík, sandkassi pólitíkusa!

hanna_birna.jpgJæja, þá er kominn borgarstjóri nr. 4 í frk. Reykjavíkurborg.  Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk keflið afhent í "virðulegri" athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.

Það er langt síðan ég hef fylgst svona náið með framgangi á pólitískum vettvangi eins og ég gerði í morgun.  Hlustaði á "útvarp Ráðhús" og setti mig í JC dómnefndargírinn.

Öðruvísi taldi ég mér ekki fært að hlusta, því pólitískar ræður hafa ekki lengur neitt vægi í mínum huga, allt sama rugliðFrown.

Ræðustíll var ágætur hjá flestum ræðumanna:

Ólafur F., of bitur.  Tel að hann sé búinn í pólitíkWoundering

Dagur, góð framsögn, innihald að mestu sagan hingað til, sem menn eru beðnir um að muna og það mun ég geraSmile.

Svandís, sköruleg að vanda, besti ræðumaðurinn að mínu matiSmile. Svandís og Dagur hljóta þó bæði að hugsa til baka til þess tíma, sem þau dásömuðu fulltrúa Framsóknarflokks í borgarstjórn og nýttu sér meinta valdagræðgi þess flokksErrm.

Óskar, betri ræðumaður en ég átti von á en innihaldið lýsti frekar örvæntingarfullum tilraunum framsóknarmanna til að komast aftur til áhrifa.  Sé nú í anda að hann verði tekinn í dýrlingatölu valdsjúkra framsóknarmannaFrown.  (opinbert innanbúðarleyndarmál: Siv bíður á hliðarlínunni).

Hanna Birna, góður ræðumaður.  Innihaldið kom mér skemmtilega á óvartSmile,  mjög "landsföðurleg" og rétti fram sáttarhönd til hægri og vinstriSmile.  Ég óska Hönnu Birnu til hamingju með embættið og vona að hún muni starfa í þeim anda, sem ræða hennar boðaðiJoyful.

Það skal að lokum tekið fram að ég er löngu hætt að taka mark á fagurgala stjórnmálamannaErrm og skil því ekki hvernig ég gat eytt dýrmætum frítíma í þetta en mér til afsökunar get ég upplýst að mér féll ekki verk úr hendi á meðan ræður voru fluttar....ég þreif eldhúsið hátt og lágt og m.a.s. ruslaskápurinn var tekinn ærlega í gegn!Whistling

 


mbl.is Hanna Birna kjörin borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst þetta virkilega málefnaleg og skemmtileg rýni á morgunverkin hjá fulltrúuma borgarstjórnar.  Svona á að taka á málunum eins og þú gerir, vona að sem flestir lesi þetta hjá þér. Takk fyrir mig.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott greining hjá þér.

Ég er farin að hallast á þá skoðun að orð séu ekki til alls fyrst.

Framkvæmdin er það.

Og hana skortir, út um allt.

Njóttu dagsins mín kæra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.8.2008 kl. 14:35

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já nú er að bíða eftir framkvæmdum og loforð séu haldin

Ía Jóhannsdóttir, 21.8.2008 kl. 18:17

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...svo eitthvað við hæfi að þrífa ruslaskápinn á meðan

Hrönn Sigurðardóttir, 22.8.2008 kl. 09:14

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk stelpur, ég lagði ofuráherslu á ruslaskápinn.

Sigrún Jónsdóttir, 22.8.2008 kl. 10:24

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Greiningardeildin þín er mjög greinileg og auðvitað hafa hreppnefndarmenn í Reykjavíkurhreppi haft þau áhrif á þig að þú þreifst ruslaskápinn.

Haraldur Bjarnason, 22.8.2008 kl. 11:18

7 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Heyrðu mín kæra, mig vantar svona þrifnaðargen á milli handboltaleikja......gætir kannski sent mér nokkur ?  knús til þín héðan úr firðinum fallega (heitt, blankalogn, smá þoka og rigning)

Halldóra Hannesdóttir, 23.8.2008 kl. 20:28

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Skemmtilegur pistill hjá tér elsku Sigrún....JC fílingurinn í hávegurm hafdur.Var sjálf í JC í gamladaga.JC Sudurnes..Já og  ruslaskápinn var gódur punkturKnús á tig mín kæra hédan frá Jyderup

Áfram Ísland

Gudrún Hauksdótttir, 24.8.2008 kl. 07:24

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Siv á hliðarlínunni.....tell me more

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 10:53

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sendu mér e-mail Hólmdís og ég skal útskýra mína kenningu.  sigrunjonsdottir@internet.is

Sigrún Jónsdóttir, 24.8.2008 kl. 10:58

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já góð úttekt hjá þér.  Ég er samt ekki viss um Ólaf, hann kom vel út úr viðtali í DV, og virðist tilbúin til að halda áfram með sín mál.  Enda er hann málafylgjumaður, þó honum hafi orðið á í embætti borgarstjóra, með ráðningar og rekstur.  Þá virðist hann hafa verið að taka á efnahagsmálum, meðan sjallar voru að leika sér og baða í sviðsljósinu.   En við skulum sjá til með hann.   Það er allavega á brattan að sækja þar.  En enginn ætti að afskrifa menn eins og Ólaf F.  Og hvar eru nú öll lætin sem voru í kring um hann í fjölmiðlum, Óskar alveg látinn í friði ? Ég votta Reykvíkingum mína innilegustu samúð með þetta ráðslag allra þeirra sem þarna eru í forsvari.  Þvílík óvirðing við kjósendur sína, sem þarna kemur fram.  Og Hanna Birna er ein af gerendum í því sjónarspili öllu, því skulu menn heldur ekki gleyma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 11:27

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég þakka innlit mín kæru.

Ásthildur, ég mun engu gleyma af því sem gengið hefur á og ef kosið væri í dag myndi ég skila auðu.

Sigrún Jónsdóttir, 25.8.2008 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband