Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæði/efnahagur!

Hvers virði er sjálfstæði þjóðar, þeim einstaklingum, sem ekki geta framfleytt sér og sínum?

Þegar stórt er spurt, verður fátt um svör.

Jón Sigurðsson - ljósmyndJón Sigurðsson var baráttukarl, sem barðist fyrir réttlæti og efnahagslegu sjálfstæði Íslensku þjóðarinnar.  Hann er án vafa einn eftirminnilegasti tímamótamaður íslenskrar sögu, fæddist á Hrafnseyri í Arnarfirði 17. júní 1811 og ólst þar upp til 18 ára aldurs.

Í dag halda Íslendingar upp á sjálfstæði þjóðarinnar á fæðingardegi þessa merka manns og er það vel en töluvert vantar ennþá upp á að við getum haldið upp á „efnahagslegt“ sjálfstæði allra Íslendinga.

Til þess að svo geti orðið þurfa lágmarkslaun og almannatryggingabætur að taka mið af raunverulegri framfærsluþörf, þess vegna þarf að vera til opinber og viðurkennd neysluviðmiðun, sem ákvarðar þann framfærslugrunn sem þarf til að einstaklingar geti lifað lífinu með reisn.    

Í dag lifa allt of margir Íslendingar undir fátæktarmörkum.  Fátækt er ljótur blettur á okkar þjóðfélagsmynd,  sem út á við sýnir ríkidæmi í þotuliðs glansmynd.  Fyrir nokkrum misserum síðan kom út skýrsla frá OECD,  þar sem fram kom  að ekki  færri en  5000  íslensk börn  lifðu við aðstæður undir fátæktarmörkum.  Það var á  góðæristímum.  Hvað verða þessi börn mörg  í  "hallærinu", sem margir segja að sé veruleiki dagsins í dag?

Þetta er mitt innlegg í baráttuna um „efnahagslegt“ sjálfstæði allra Íslendinga!Wink

Fátækt er smánarblettur hjá ríkri þjóð og við því þarf að bregðast.

„Vér mótmælum allir“ sinnuleysi Íslenskra stjórnvalda, sem láta þetta viðgangast.

Annars bara allt í góðu, en mikið vildi ég geta eytt þessum fallega degi á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, að Hrafnseyri við Arnarfjörð í góðu yfirlæti staðarhaldarans Valdimars Jóns Halldórssonar.

Hrafnseyri við Arnarfjörð

Gleðilega þjóðhátíðWizard

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Lengi lifi minning Jóns Sigurðsonar,gleðilega þjóðhátíð.

Magnús Paul Korntop, 17.6.2008 kl. 14:40

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleðilegan 17.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.6.2008 kl. 15:45

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hann hefði orðið eitthundraðníutíuogsjöööö ára í daaag, hann Jón Sigurðssooon hann hefði orðið eitthundraðníutíuogsjöö ár'í daaag

Gleðilegan dag

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 20:24

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bara á þing með þig vinkona!  Déskoti held ég að okkur vanti svona skelleggar persónur.  Andsotinn sjálfur að ég hafi ekki kostningarétt!!!  Hvernig væri ef við gætum kosið einstaklinga en ekki einhverja bölvaða flokka sem er fokka öllu upp? 

Kveðja inn í góðan dag, þá meina ég  á morgun. Hér er komin hánótt og löngu komn tími til að leggjast á eyrað.  

Ía Jóhannsdóttir, 18.6.2008 kl. 00:42

5 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

DJÔ... Tek ég undir med Ìu.Flott innlegg hjá tér Sigrún mín.

Ég myndi kjósa tig og vera tinn studningsmadur engin spurning

KNús á tig inn í gódann dag.

Gudrún Hauksdótttir, 18.6.2008 kl. 11:18

6 identicon

Elsku Sigrún! Frábær hugleiðing, allt svo satt.

Vona að þú eigir góða nótt og góðan dag á morgun

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 22:39

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2008 kl. 01:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband