Leita í fréttum mbl.is

Æi.....

Ég sé að yngri sonurinn var ekkert of ánægður með síðustu færslu mínaBlush, hefur sennilega ekki húmor fyrir svona "kvenrembu" hjá henni móður sinni, sem hefur nú ekki talið það eftir sér að "þjóna" honum dyggilega í gegnum uppvöxtinn!Wink  Nei, nei, ekki alveg rétt hjá mér.  Ómar Daníel hefur alla tíð verið ósköp sjálfbjarga og "þægilegur" í sambúð, enda ekta vatnsberi og ég elska hannInLove.

Ég vona að allir þeir, sem eru svo heppnir að vera í Páskafríi séu að njóta þess, með sínum nánustu, hvort sem það er í leti og hvíld, eða við skíðaiðkun og annan hamagang í snjóaparadísum Íslands.

Ég mæti á mínar vinnuvaktir, meira af vilja en getu þessa daganna.  Er að "drepast" úr verkjum í hægra upphandleggSick, en þetta hefst fram yfir Páska vegna frábærs vinnufélaga, sem tekur að sér allar "teygjur og réttur" fyrir mig!Heart  Í næstu viku á ég svo tíma hjá sjúkraþjálfara, sem mun vonandi "kippa þessu í liðinn" fyrir mig, svo ég þurfi nú ekki að vera mikið frá vinnu út af þessum fjáraPinch.  Ég er samt ekkert að biðja um neina vorkunn, sei, sei, neiCool, því við Elsa mín munum klára þessar vaktir í sátt og samlyndi, við erum vanar því!Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já Hallgerður, ég veit það.  Er samt alveg búin að læra að vera ekki að leika þetta fórnarlamb, maður kemur í manns stað o.sv. frv. en Páskarnir eru erfiðir, það vilja allir vera í fríi, sem eiga að vera í fríi!  Er búin að fara til læknis og sjúkraþjálfara sem sendi mig í myndatöku fyrir hátíðarnar, og svarið úr myndatökunni fæ ég á þriðjudag! og fer svo til sjúkraþjálfara á miðvikudag og hún mun vonandi laga þetta á nótæm! Vinnufélaginn réði líka miklu um að ég treysti mér til að mæta.  En nú er mér ekki til setunnar boðið, farin í vinnu og sendi ykkur mínar bestu kveðjur.

Sigrún Jónsdóttir, 22.3.2008 kl. 14:14

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Enginn ræður veikindi. Sé að þú lendir í svipuðu og ég, farið af stað með rannsóknir síðan tekur við biðin mikla. Þangað til máttu þreyja Þorran með þína verki. Í öllu falli ertu ekki vinnufær, mín kæra.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 22.3.2008 kl. 14:41

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Guðrún mín, ég hef nú ekki lent í sömu hremmingum og þú sem betur fer, enda hefur þín píslarganga verið átakanleg.  Það er nú bara rétt vika frá því að ég drattaðist til læknis til að fá beiðni til að fara til sjúkraþjálfara og hún (sjúkraþjálfarinn) vildi mynd, því hún var hrædd um að þetta væri kannski eitthvað meira en vöðvafestarnar.

Ég mæti í vinnuna í fyrramálið, en svo sé ég bara til, er alla vega orðin mjög pirruð á hreyfigetu-leysinu!

Hafðu það sem best í fríinu og ég vona að það fari að rofa til með þín veikindi.

Sigrún Jónsdóttir, 23.3.2008 kl. 00:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig elskuleg mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir

Samfélagsmál eru allra mál!

 

sigrunjonsdottir@internet.is 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband